Ófeigsfjarðarætt á bókamarkaði

Bókakaffið, sem er í eigu Bjarna Harðarsonar á Selfossi, festi nýlega kaup á bókalager Ættfræðiþjónustunnar en þar er meðal annars að finna fjölmörg þeirra ættfræðirita sem komu út á seinasta fjórðungi 20. aldar. Þá hafa smærri söfn ættfræðibóka borist fyrirtækinu með öðrum bókasöfnum.

Bókakaffinu rekur bókakaffi á Selfossi og í Reykjavík að Ármúla 42. Þar er gott úrval af íslenskum ævisögum, þjóðlegum fróðleik, sagnfræði og fleiru. Bókakaffið selur jöfnum höndum nýjar og notaðar bækur. Auk bókanna sem gestir finna í hillum hefur verslunin yfir að ráða stórum bókalager notaðra bóka austanfjalls en Bókakaffið í Ármúla er hluti af rekstri Bókakaffisins á Selfossi.

Meðal þeirra ættartölurita sem bjóðast nú á hagstæðu verði í lagersölu má nefna Auðsholtsætt, Bollagarðaætt, Briemsætt, Deildartunguætt, Engeyjarætt, Galtarætt, Gunnhildargerðisætt, Hallbjarnarætt, Hreiðarsstaðakotsætt, Húsatóftaætt, Knudsensætt, Laugardalsætt, Longætt, Lækjarbotnaætt, Ófeigsfjarðarætt, Pálsætt undan Jökli, Reykjaætt, Róðhólsætt, Zoëgaætt og að auki margskonar smáprent og stéttatöl.

Bókakaffið í Ármúla 42 er opið frá 11-18 alla virka daga og frá 11-16 á laugardögum. Lokað á sunnudögum. Sími þar er 546 3079.

DEILA