Bolungarvík – Skotið á hesthús

Í gær mánudag var tilkynnt um för eftir haglaskot í þakkanti og veggklæðningu eins hesthúsanna sem stendur undir fjallinu Erni í Bolungarvík í gær.

Frá þessu segir í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. Þar kemur fram að líklega hafi skoti eða skotum verið hleypt af í átt að húsinu um síðastliðna helgi.

„Þetta athæfi er litið alvarlegum augum og óskar lögreglan eftir upplýsingum frá öllum þeim sem kunna að búa yfir þeim og gætu skipt máli við rannsókn málsins. Grunsamlegar mannaferðir um sl. helgi eða annað sem eru vel þegnar.

Hringja má í síma 112 eða senda skilaboð hér á facebooksíðu lögreglunnar á Vestfjörðum,“ segir í tilkynningunni.

DEILA