Vestfjarðastofa: Hæfnihringir – fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni

Vestfjarðastofa stendur að samstarfsverkefni, sem kallað er hæfnihringir,  ásamt atvinnuþróunarfélögum á landsbyggðinni sem eru til þess að aðstoða frumkvöðlakonur við að komast yfir hindranir með því að styrkja hæfni og færni þeirra, veita stuðning í formi fræðslu og hagnýtra tækja til eflingar og hvatningar ásamt því að efla tengslanet þeirra. Hringjunum er stýrt af leiðbeinendum í gegnum Zoom, sem er gjaldfrjálst netforrit.

Hæfnihringir eru byggðir á aðferðafræði, sem kallast aðgerðanám, en það grundvallast á því að nota raunverulegar áskoranir, verkefni og tækifæri sem grunn fyrir lærdóm.

Eftirfarandi ráðleggingar eru gefnar til þátttakenda:

  • Deildu þínum áskorunum, verkefnum og tækifærum með öðrum konum og fáðu ráðleggingar á jafningjagrundvelli.
  • Vertu í mátulega krefjandi en samt öruggu umhverfi þar sem hugmyndir geta verið reyndar og þróaðar.
  • Stækkaðu tengslanet þitt með konum, sem eru í svipuðum sporum og þú.

Fundirnir eru einu sinni í viku, í sex skipti. Við tekur svo regluleg eftirfylgni á fundum og í lokuðum Facebook hóp. Fyrsti fundurinn verður fyrstu vikuna í febrúar kl. 14:30 – 16:00. Dagsetning auglýst síðar.

Umsóknarfrestur er til 20. janúar.

Upplýsingar veita: Agnes Arnardóttir agnes@vestfirdir.is og Þórkatla Ólafsdóttir thorkatla@vestfirdir.is

Opið verður fyrir skráningar til 20. janúar. Eyðublað má nálgast hér

DEILA