Við áramót tóku gildi uppfærðar gjaldskrár Ísafjarðarbæjar.
Meðal breytinga er að svo kallaðir súperpassar, sem innifólu árskort í sund og/eða líkamsrækt og vetrarkort á skíði á lægra verði, eru dottnir út.
Í staðinn fá árskorthafar í sundlaugum Ísafjarðarbæjar 50% afslátt af vetrakorti á skíði og af árskorti í líkamsrækt.
Hægt er að kaupa öll kortin bæði í sundlaugum og á skíðasvæðinu.