Hægt er að fá rafræn bólusetningarvottorð

Í gær og í dag fær hópur einstaklinga síðari bólusetningarsprautuna gegn COVID-19 og telst þar með fullbólusettur.

Hjá embætti landlæknis er verið að leggja lokahönd á rafræna lausn sem gerir fólki kleift að sækja sér bólusetningarvottorð á vefnum; heilsuvera.is.

Stefnt er að því að þetta verður mögulegt frá og með deginum í dag.

Vottorðið verður að efni og útliti í samræmi við fyrirliggjandi evrópska staðla og alþjóðlega bólusetningarskírteinið.

Markmiðið er að greiða för fólks milli landa, þannig að einstaklingar geti framvísað bóluefnarvottorði á landamærum og séu þá undanþegnir sóttvarnaráðstöfunum vegna COVID-19 í samræmi við reglur hlutaðeigandi lands.

Eins og kynnt var í liðinni viku hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að bólusetningarvottorð sem uppfylla leiðbeiningar sóttvarnalæknis og eru gefin út í í EES/EFTA-ríki verði tekin gild á landamærum Íslands.

Þeir sem framvísa slíku vottorði eru undanþegnir opinberum sóttvarnaráðstöfunum á landamærum og er þannig ekki skylt að fara í sýnatöku við landamæri.

Þeir sem ekki geta nýtt sér heilsuveru til að sækja sér rafrænt bólusetningarvottorð geta fengið vottorð hjá heilsugæslunni um að þeir séu fullbólusettir.

DEILA