Ferðaklúbburinn 4×4 segir sig úr Landvernd

Ferðaklúbburinn 4×4 hefur sagt sig úr Landvernd sem klúbburinn sakar um að hafa rekið stefnu undanfarin ár sem hafi verið öfgakennd, markast af harðlínu og farið langt út fyrir svið náttúruverndar.

Félagið hefur sagt sig úr Landvernd með eftirfarandi bréfi:

Reykjavík 14. janúar 2021

Hér með tilkynnist stjórn Landverndar úrsögn Ferðaklúbbsins 4×4 úr Landvernd.

Ástæða uppsagnarinnar er stefna Landverndar sem hefur gengið of langt í öllum sínum gjörðum og gengið þvert gegn hagsmunum Ferðaklúbbsins 4×4. Í þessu sambandi er einnig bent á yfirlýsingu Landverndar vegna Vonarskarðsins en þar er stefna Landverndar sú að loka skuli ökuleið um örfoka sanda fyrir umferð og á sú stefna Landverndar ekkert skylt með náttúruvernd.

Stefna Landverndar undanfarin ár hefur verið öfgakennd og markast af harðlínu sem farið hefur langt út fyrir svið náttúrverndar að okkar mati.

Því hefur stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 ákveðið að vegna stefnu Landverndar gagnvart málefnum tengt hagsmunum njótenda og notenda á hálendi Íslands, að segja sig úr félaginu og hætta öllum stuðningi við það. Einnig segjum við okkur úr öllum nefndum og óskum eftir því að nafn okkar verði fjarlægt sem félagsaðila innan samtakanna.

Fh. Ferðaklúbbsins 4×4

Sveinbjörn Halldórsson

formaður Ferðaklúbbsins 4×4

DEILA