SVANNI : Lán til kvenna í fyrirtækjarekstri

Búið er að opna fyrir umsóknir í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna sem er nú að hefja sitt þriðja starfstímabil.

Svanni veitir lán til fyrirtækja í eigu konu/kvenna og er hámarkslán 10 milljónir en sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann, er veitir lánin.

Sjóðurinn veitir lán með lánatryggingum til fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna og er hann liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar á Íslandi. Samkvæmt samþykktum sjóðsins eru hlutverk hans m.a. að styðja við bakið á konum sem eiga og reka smærri fyrirtæki, að auka aðgengi kvenna að fjármagni, að fjölga störfum og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Sjóðurinn er í eigu forsætisráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis og Reykjavíkurborgar.

Skoða má nánari upplýsingar um lánareglur og lánskjör hér.

Fjölmörg spennandi fyrirtæki hafa fengið fyrirgreiðslu hjá sjóðnum á undanförnum árum og er ljóst að þörfin á sjóði sem slíkum er mi

DEILA