Ný bók: Betri útgáfan

Í þessari bók er að finna skemmtilegar og fræðandi greinar frá mögnuðum einstaklingum um heilsu, hreyfingu, mataræði, markmiðasetningu og hugarfar.

Bókin inniheldur einnig fjölda einfaldra og bragðgóðra uppskrifta með næringarupplýsingum. Uppskriftirnar koma frá fólki úr ýmsum áttum sem þekkja það að breyta um lífsstíl.

Þessi bók hefur flest sem þarf til þess að koma þér af stað í átt að því að verða betri útgáfan af sjálfum þér. Hún er miðuð að því að aðstoða alla þá sem vilja hefja sitt ferðalag að bættu lífi.

Höfundar bókarinnar eru Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir.

DEILA