Litakóðunarkerfi tekið upp vegna COVID-19

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og Embættis landlæknis að COVID-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum líkt og veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands.

Viðvörunarkerfinu er ætlað að auka fyrirsjáanleika til lengri tíma varðandi þær aðgerðir sem grípa þarf til í baráttunni við faraldurinn og lágmarka þannig heildarskaðann sem hann veldur í samfélaginu.

Kerfið verður kynnt á næsta upplýsingafundi Almannavarna og Landlæknis á mánudag.

DEILA