Landhelgisgæslan með í jólakveðju Atlantshafsbandalagsins

Andri tekur við gjöf frá vélmenninu.

Liðsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingarsveitar Landhelgisgæslunnar og eitt af vélmennum sveitarinnar eru í aðalhlutverki í bráðskemmtilegri jólakveðju Atlantshafsbandalagsins sem tekin var upp hér á landi.

Sveitin hefur um árabil tekið þátt í friðargæslu- og mannúðarverkefnum undir merkjum Atlantshafsbandalagsins, meðal annars með þjálfun annarra sprengjusérfræðinga í sprengjueyðingu á átakasvæðum.

Þá sér sveitin um Northern Challenge sem er alþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga og er haldin hér á landi árlega.
Atlantshafsbandalagið er bakhjarl æfingarinnar.

https://youtu.be/U5ccpdJIKQE

Jón Marvin Pálsson og Andri Rafn Helgason, liðsmenn sveitarinnar, sýna lipra leiklistarhæfileika að ógleymdu vélmenni sveitarinnar.

DEILA