Byggðastofnun kortleggur húsnæði fyrir störf án staðsetningar

Kort Byggðastofnunar sýnir staði sem bjóða upp á húsnæði fyrir störf án staðsetningar.

Byggðastofnun hefur tekið saman upplýsingar um mögulegt húsnæði fyrir störf án staðsetningar. Upplýsingum var safnað saman með aðstoð landshlutasamtaka sveitarfélaga og hafa verið settar fram á sérstöku korti.

Á kortinu eru nú 83 staðir þar sem hægt er að taka við fólki sem vinnur starf án staðsetningar með rúmlega 100 starfsstöðvar fyrir einstaklinga.

Kortinu er ætlað að vera lifandi upplýsingagátt fyrir forstöðumenn ráðuneyta og stofnana og alla þá sem hugsa sér að sinna opinberu starfi án staðsetningar. Á kortinu birtast grunnupplýsingar um viðkomandi staði og tengilið ef áhugi er fyrir hendi. Kortið var unnið að beiðni samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og er ætlunin að uppfæra upplýsingarnar sem þar birtast eins og þörf krefur.

Í gildandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 er sett fram markmið um að 10% allra auglýstra starfa í ráðuneytum og stofnunum þeirra verði án staðsetningar árið 2024 þannig að búseta hafi ekki áhrif við val á starfsfólki (aðgerð B.7. – Störf án staðsetningar).

DEILA