Vörukarfa ASÍ hækkað um 0,5%-2,6%

Á fimm og hálfum mánuði eða frá því í lok maí fram í byrjun nóvember hefur vörukarfa ASÍ hækkað um 0,5%-2,6% í sjö verslunarkeðjum en vörukarfan endurspeglar almenn matarinnkaup meðalheimilis.

Mest hækkaði vörukarfan í Nettó, um 2,6% og næst mest í Bónus, 2,4%.

Minnst hækkaði vöruakarfan í Hagkaup milli mælinga eða um 0,5% en í 6 tilfellum af 7 hækkaði vörukarfan 1,5%-2,6%.

Verð hækkaði í flestum vöruflokkum en minnstu verðhækkanirnar voru í flokki grænmetis og ávaxta og kjötvara og lækkaði verð í þeim vöruflokkum í einhverjum tilfellum.
Verðmælingar fóru fram vikurnar 18-25. maí og 2.- 9. nóvember 2020.

Vörukarfan hækkar um 2,6% í Nettó og 2,4% í Bónus

Mest hækkaði vörukarfan eins og áður segir í Nettó um 2,6%. Munar þar mestu um hækkun drykkjarvara 5,6% og hækkun á mjólkurvörum og ostum, 5,1%.
Næst mest hækkaði vörukarfan í Bónus, 2,4% en þar hækkuðu grænmeti og ávextir mest eða um 6,8% og þá hækkuðu mjólkurvörur og ostar um 4,5%.

Minnst hækkaði vörukarfan í Hagkaup, 0,5% en þar lækkaði verð á kjötvöru um 1,8% milli mælinga.
Sykur, súkkulaði og sælgæti lækkaði einnig lítillega í verði í Hagkaup en verð á brauði- og kornvörum stóð nánast í stað milli mælinga.
Drykkjarvörur hækkuðu þó mikið í Hagkaup eða um 6,2%.

Af lágvöruverðsverslununum Bónus, Krónunni og Nettó hækkaði verð minnst í Krónunni, um 1,5% samanborið við 2,4% verhækkun á vörukörfunni í Bónus og 2,6% í Nettó.

Ef litið er til annara verslana sem teljast ekki til lágvöruverðsverslana og eru ýmist með lengri opnunartíma eða eru staðsettar á fleiri stöðum á landinu má sjá að vörukarfan í Iceland hækkar mest eða um 2,1% samanborðið við 1,8% hækkun á vörukörfunni í Kjörbúðinni og 1,7% í Krambúðinni.

DEILA