Samkomulag við Breta um samstarf í sjávarútvegsmálum undirritað

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Victoria Prentis, sjávarútvegs-, landbúnaðar- og matvælaráðherra Bretlands undirrituðu í dag samkomulag um framtíðarsamstarf ríkjanna í sjávarútvegsmálum

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrar Íslands og Bretlands, Kristján Þór Júlíusson og Victoria Prentis, undirrituðu í dag samkomulag um framtíðarsamstarf ríkjanna í sjávarútvegsmálum.

Með samkomulaginu er stofnað til reglulegs samráðs til að viðhalda og efla gott samstarf ríkjanna á sviði sjávarútvegs eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Stofnað er til þessa samráðsvettvangs á grundvelli almennrar samstarfsyfirlýsingar Íslands og Bretlands um sameiginlega sýn ríkjanna fyrir 2030, sem undirrituð var í maí á þessu ári.
Þessi vettvangur verður nýttur til samstarfs á flestum sviðum sjávarútvegs og tengdum greinum, svo sem skipti á reynslu og þekkingu á sviði fiskveiðistjórnunar, hafrannsókna, útgerðar, fiskvinnslu og nýsköpunar.

Samstarfið mun bæði ná til sameiginlegra verkefna og til samráðs vegna starfs alþjóðastofnana svo sem Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO).

Við undirritunarathöfnina, sem fram fór í gegnum fjarfundabúnað vegna faraldursins, sagði Kristján Þór Júlíusson:

“ Íslendingar og Bretar eru miklar vinaþjóðir sem hafa haft náin tengsl sín á milli í margar aldir. Þau tengsl hafa ekki síst verið á sviði sjávarútvegs. Bretlandsmarkaður er mikilvægur fyrir mörg íslensk fyrirtæki og bresk stjórnvöld eru mikilvægur samstarfsaðili íslenskra stjórnvalda innan margra alþjóðastofnana. Ég er sannfærðum um að þetta samkomulag sé upphafið að góðri samvinnu.“

Victoria Prentis, landbúnaðar-, sjávarútvegs- og matvælaráðherra Bretlands sagði meðal annars:

„Samkomulagið sýnir hið sterka samband sem ríkir milli þjóðanna tveggja varðandi mál eins og verslun og sjávarútveg. Ég vil þakka Íslendingum fyrir þá uppbyggilegu nálgun sem þeir sýndu við gerð samkomulagsins. Við höfum þegar séð hve mikla möguleika samstarf milli okkar býður upp á í ljósi þeirra fjölmörgu mála og markmiða sem við eigum sameiginleg varðandi fiskveiðistjórnun, og við hlökkum til að halda þessu uppbyggilega samtali áfram.“

DEILA