Sjónvarpsstöðin N4 hefur verið á ferð um Vestfirði og fjallað um öflugt atvinnulíf, ferðaþjónustu og samfélögin m.a. í Vesturbyggð. Þættirnir eru unnir í samstarfi við Vestfjarðastofu.
Hægt er að skoða þessa þætti og eru hér fyrir neðan upplýsingar um þá þætti og tenglar til að skoða þá:
Landsbyggðir – Atvinnulífið á Vestfjörðum
Rætt við Rebekku Hilmarsdóttur bæjarstjóra í Vesturbyggð og Sigurð Pétursson, framkvæmdastjóra hjá Arctic Fish.
Atvinnupúlsinn á Vestfjörðum – 3. þáttur
Meðal annars er rætt við Skjöld Pálmason hjá Odda hf, Gunnþórunni Bender hjá Westfjords Adventures og Aðalbjörgu Þorsteinsdóttur hjá Villimey
Atvinnupúlsinn á Vestfjörðum – 4. þáttur
Fjallað um Íslenska Kalkþörungafélagið á Bíldudal ásamt því að skoða aukin umsvif og framkvæmdir á Bíldudalshöfn. Einnig rætt við Barða Sæmundsson hjá Loga ehf og fjallað um fjölskyldufyrirtækið Tungusilung á Tálknafirði.
Atvinnupúlsinn á Vestfjörðum – 5 þáttur samantekt
Fjallað um Dýrafjarðargöng og opnun þeirra. Rætt m.a. við Guðrúnu Önnu Finnbogadóttur, verkefnastjóra hjá Vestfjarðastofu og Sigríði Björg Gísladóttur eiganda Hótel West á Patreksfirði.