Matvælasvindl er vaxandi vandamál

Matvælastofnun ítrekar að allir sem framleiða, vinna eða geyma vottuð lífræn matvæli eða flytja inn vottuð lífræn matvæli frá löndum utan Evrópu þurfa að tilkynna starfsemina til síns eftirlitsaðila og vera sjálfir með lífræna vottun.
Stofnunin hefur farið þess á leit við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga að það gangi úr skugga um að slík vottun sé til staðar.

Innflytjendur þurfa jafnframt að skrá innflutning á vottuðum lífrænum vörum frá þriðju ríkjum í TRACES NT gagnagrunninn þar sem Matvælastofnun sannprófar uppruna og vottun afurðanna og samþykkir afhendingu vörusendingarinnar.

Matvælasvindl er vaxandi vandamál á heimsvísu. Vottunarferli fylgir ítarlegt eftirlit með skjölum og bókhaldi á innkaupum og sölu til að koma í veg fyrir að neytendur séu blekktir.

Hér á landi er einn aðili með faggildingu til að votta lífræna framleiðslu. Það er Vottunarstofan Tún, Þarabakka 3, Reykjavík.

Matvælastofnun hefur gert samning við Tún um framkvæmd eftirlitsins.

Það er heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og Matvælastofnunar að fylgja því eftir að slík vottun sé til staðar meðal sinna eftirlitsþega.

DEILA