Laugardaginn 14. nóvember var sagt frá því í hádegisfréttum að Dagur B Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík hefði fellt hátíðtorgtré borgarinnar, Óslóartréð, í útivistarskógi Reykvíkinga í Heiðmörk. Þetta var myndarlegt sitkagrenitré, 12,4 m að lengd.
Eftir hádegi sama dag kom Björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík til Skógræktarfélags Ísafjarðar, að ná í aðaltorgtré Bolungarvíkur eins og undanfarin ár. Tréð var fellt í Stórurðrarlundi ofan við bæinn. Stórt og greinamikið sitkagrenitré og reyndist tæpir 9 m að lengd. Þetta tré er sérstaklega fallegt, en þau eru aðeins misjöfn frá ári til árs eins og gengur. Sveitin dró tréð út úr skóginum með spili á bíl sveitarinnar og flutti heim á vagni.
Ísfirðingar taka ekki sín aðaljólatré til að setja upp á þéttbýlisstöðum sveitarfélagsins, úr útivistarskógi Ísfirðinga í Skutulsfirði. Þau eru keypt annars staðar og flutt að en fáein minni tré eru þó tekin hjá Skógræktarfélaginu.
Myndir og frásögn: Gísli Eiríksson.