Verum ástfangin af lífinu

Einu sinni enn heimsótti Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og fyrrverandi knattspyrnumaður nemendur á Vestfjörðum.

Í þetta sinn voru það meðal annars nemendur í 9. og 10. bekk Grunnskólans á Ísafirði sem fengu að hlusta á fyrirlesturinn ,,Verum ástfangin af lífinu“.

Þar fjallaði hann um markmiðasetningar, árangur og lífið sjálft og hvatti nemendur til að láta drauma sína rætast með því að bera ábyrgð á eigin lífi, setja sér markmið, hafa trú á sjálfum sér til að ná markmiðunum og skipuleggja sig í samræmi við það.

Þorgrímur fjallaði einnig um mikilvægi þess að halda góðu jafnvægi milli einkalífs, atvinnu og tómstunda til þess að þroskast fallega og lifa björtu lífi.

Þá hvatti hann nemendur til að sýna samkennd, bera virðingu fyrir öllum og hafa hugrekki til að fylgja hjartanu, því við erum öll einstök og eigum að njóta þess.

Þorgrímur hefur farið með þennan fyrirlestur sinn um allt land og nær alveg einstaklega vel til nemenda.

DEILA