Veðurstofan endurskoðar hættumat vegna snjóflóða

Veðurstofan hefur sent út bréf til fjögurra sveitarfélaga, þar með talið Vesturbyggðar og Ísafjarðarbæjar, og tilkynnt formlega að endurskoða þurfi hættumat  undir nokkrum varnargörðum sem reistir hafa verið hér á landi á síðustu árum. Þar á meðal eru leiðigarðar á Flateyri, á Bíldudal (Búðargil) og  á Ísafirði (Seljalandshlíð).

Veðurstofan telur réttast að ekki séu að svo komnu máli reistar nýjar byggingar á A-hættusvæðum undir varnargörðum á lóðum ofan núverandi byggðar eða nær varnargörðum en fyrirliggjandi byggð sem teygja byggðina nær hlíðinni eða nær
varnargörðum en nú er. Sér í lagi er ástæða til þess að fara varlega á svæðum sem skilgreind voru hættusvæði C í hættumati fyrir byggingu varnargarða.

 

Í fyrirliggjandi byggð er nú heimilt skv. reglugerðinni að reisa íbúðarhús með allt að fjórum íbúðum á hættusvæðum A og (sumt) atvinnuhúsnæði á hættusvæðum A og B án sérstakra krafna um styrkingu.

Til athugunar er að þessi heimild nái ekki til efstu lóða á svæðum sem varin hafa verið með
varnarvirkjum og voru skilgreind sem C-svæði áður en varnarvirkin voru reist. Jafnframt yrðu ákveðin svæði undir varnarvirkjum sérstaklega afmörkuð og tilgreint að þar sé þétting byggðar óæskileg.

DEILA