Sveitarfélögin fagna samstarfi Baader og Skagans 3X

Ísafjarðarbær og Akraneskaupstaður sendu frá sér í morgun sameiginlega yfirlýsingu vegna samstarfs Baader og Skagans 3X sem grein var frá fyrr í morgun. Þar segir að um ánægjulegar fréttir sé að ræða og að tækifæri felist í samrekstri fyrirtækjanna. Einhugur er í báðum sveitarstjórnum um að styðja fyrirtækin í þessari ákvörðun.

 

„Í morgun var tilkynnt í fjölmiðlum að fyrirtækið Skaginn 3X og stórfyrirtækið Baader hafi ákveðið að sameina krafta sína á næsta ári, með fyrirvara um samþykki þar til bærra eftirlitsstofnana.

Um afar ánægjulegar fréttir er að ræða, ekki síst á þeim sérstöku tímum sem nú blasa við í íslensku samfélagi og heimsbyggðinni allri.

Skaginn 3X er með starfsstöðvar bæði á Akranesi og Ísafirði. Á sameiginlegum fundi í gærkvöldi fengu bæjarfulltrúar sérstaka kynningu á þessum áformum frá Ingólfi Árnasyni forstjóra Skaginn 3X og nokkrum lykilstarfsmönnum.

Ljóst er að í samrekstri Skaginn 3X og Baader felast mikil tækifæri til að vaxtar með aukinni framleiðslu afurða fyrirtækisins og sölu þeirra. Þá er ljóst að einnig felast í þessu tækifæri til að stórefla rannsókna og þróunarstarf til hagsbóta fyrir starfsfólk og íslenskt samfélag.

Einhugur er meðal bæjarfulltrúa um að fylgja fyrirtækjunum í þessari vegferð enda er fyrirtækið Skaginn 3X með sterkar rætur í báðum bæjarfélögum.

Ástæða er til að fagna þessum tímamótum og óska fyrirtækinu og bæjarbúum til hamingju með áfangann og þessi merku tíðindi.“

DEILA