Kerecis: Nýr íslenskur nef- og munnúði gegn Covid-19

Lækningavörufyrirtækið Viruxal ehf., dótturfélag íslenska lækningavörufyrirtækisins Kerecis hf., hefur sett á markað nef- og munnúða sem gætu hjálpað til í baráttunni við Covid-19. Vörurnar eru hluti af persónulegum sóttvörnum og hafa það að markmiði að minnka veirumagn í efri öndunarfærum.

Þetta kemur fram í fréttatikynningu frá Kerecis.

Vörur Kerecis eru sáraroð og vörur sem byggja á fitusýrum. Í gegnum margra ára reynslu af þróun, framleiðslu og sölu á sáravörum hefur orðið til hjá Kerecis veiruhamlandi tækni sem kölluð er Viruxal, sem nú hefur verið færð í sjálfstætt dótturfélag með sama nafni. Viruxal inniheldur fitusýrur sem hafa veiruhamlandi áhrif.

Forsagan er sú að ein af vörum Kerecis er sáraúði sem inniheldur Viruxal fitusýrur. Varan hefur verið notuð á sjúkrastofnunum víðsvegar um heiminn í þeim tilgangi að græða sár og koma í veg fyrir sýkingar. Í vor skapaðist neyðarástand vegna Covid-19 á Ítalíu. Þar í landi er mikil notkun á sáraúðanum og þekkja ítalskir læknar vel til veiruhamlandi eiginleika vörunnar. Læknar fóru því að úða Viruxal fitusýrum í háls og munn sjúklinga sem höfðu byrjunareinkenni Covid-19. Tilgangurinn með að nota sáraúðann í háls sjúklinganna var að hindra framgang sjúkdómsins. Eftir meðhöndlun á meira en 70 sjúklingum lofuðu fyrstu niðurstöður góðu.

Í framhaldi af notkuninni á Ítalíu á sáraúðanum í tengslum við Covid-19 hafa nú verið þróaðar tvær samverkandi lækningavörur til notkunar í nef og munni. Vörurnar eru ViruxNasal og ViruxOral, sem hafa það að markmiði að minnka veirumagn í öndurfærum með tímabundnu varnarlagi.

Kórónuveiran smitast með snerti- og dropasmiti og hafa ritrýndar vísindagreinar staðfest að veiran sýki einstaklinga aðallega í gegnum nefhol. Samkvæmt þessum greinum tekur veiran sér svo bólfestu í slímhúð nefholsins og getur þar magnast og dreifst. Viruxal nef- og munnúðunum er úðað í öndunarfærin og skapa þar tímabundið varnarlag sem hjálpar til við að draga úr veirumagni. Þetta gerir úðinn með því að hindra sjúkdómsvaldandi loftbornar örverur frá því að festast við slímhimnuyfirborðið.  Úðinn er ætlaður sem fyrirbyggjandi vörn gegn smiti á SARS-CoV-2 vírusnum sem veldur Covid-19 sjúkdómnum. Varnarlagið inniheldur örfínar fitusýrusameindir sem samkvæmt mælingum á rannsóknarstofu eyðileggja SARS-CoV-2 með því að rjúfa ytri himnu veirunnar.

„Ef hægt er að minnka magn veirunnar meðan hún er enn þá í nefholi eða koki þá veikist maður ekki eins mikið. Þegar veiran færist niður í lungu þá verður fólk oft mikið veikt. Markmið okkar er að stöðva þetta ferli“, segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis. „Þegar kórónuveirufaraldurinn blossaði upp fræddu læknar almenning um að handsápa væri besta vörnin gegn veirunni, veikasti hlekkur kórónuveirunnar væri fituhimna hennar. Sögðu læknar sápuna leysa upp fituhimnu veirunnar og gera hana þannig óvirka. Svipuð hugmyndafræði er að baki ViruxNasal og ViruxOral. Aðferðarfræðin á bak við tæknina er sú að búa til varnarlag í munni og nefi. Þegar veiruhlaðnir dropar lenda í þessu varnarlagi þá afmyndast veiran og eyðileggst.“, segir Guðmundur.

Öflug rannsóknar- og þróunaráætlun er í framkvæmd í tengslum við þessa nýju tækni. Úðinn hefur meðal annars verið rannsakaður á rannsóknarstofu hjá Utah State University og leiddu þær rannsóknir í ljós að úðinn eyðir 99.97% af SARS-CoV-2. Í tilrauninni var Viruxal fitusýrunum og SARS-CoV-2 veirum blandað saman og látnar standa í 30 mínútur áður en veirunni var gefið tækifæri til að komast inn í frumur. Einnig var mælt hversu mikið af veirunum eyddust og fóru ekki inn í frumur. Í þeim tilraunaglösum sem innihéldu Viruxal fitusýrur reyndust 99,97% SARS-CoV-2 veirunnar óvirkar og sýktu því ekki frumurnar.

Rannsóknir á mönnum eru einnig í gangi, meðal annars hjá Landspítalanum. Í annarri bylgju, þegar nýgreindum fór að fjölga í ágúst og september var 128 Covid-19 smituðum einstaklingum boðin þátttaka í samanburðarrannsókn þar sem Viruxal úðarnir eru gefnir helmingi einstaklinganna og hinn helmingur fær óvirkan samanburðarúða (e. placibo). Covid göngudeild Landspítalans hefur umsjón með rannsókninni.

Viruxal tæknin hefur verið notuð á opin þrálát sár undanfarin ár á tugþúsunda sjúklinga án þess að upp hafi komið nokkur skaðvænleg atvik.

Munn- og nefúðar Viruxal eru nú fáanlegir í helstu apótekum landsins. Stefnt er að hefja sölu á alþjóðlegum mörkuðum á næstu mánuðum.

Þriðjudaginn 20.október mun fara fram vísindakynning sem streymt verður á netinu og er opin almenningi. Þar munu vísindamenn og læknar félagsins kynna fræðin á bak við vöruna.

 

 

 

DEILA