Nettó opnar netverslun á Hólmavík

Verslunarhúsnæðið á Hólmavík. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Nettó í samstarfi við Krambúðina hefur ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum í Búðardal,
Reykjahlíð, Hólmavík og Flúðum upp á að fá vörur sendar úr netverslun Nettó.

Þetta er gert í tilraunaskyni til að mæta óskum viðskiptavina verslananna.
„Við höfum verið í góðum samskiptum við íbúa sveitarfélaganna og erum sífellt að leita leiða til að bæta þjónustu okkar. Með netverslun Nettó gefst okkur tækifæri á að bjóða íbúum á þessum svæðum upp á enn hagstæðari verð í heimabyggð,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa.

Verðið gæti lækkað um 15 – 30%

Íbúum sveitarfélaganna gefst kostur á að panta vörur í gegnum netverslun Nettó og fá þær
afhentar í Krambúðum á svæðinu. Sendingar eru viðskiptavinum að kostnaðarlausu sé verslað fyrir 15 þúsund krónur eða meira annars bætist við 1.490 króna sendingargjald.

Til að byrja með verður eingöngu hægt að fá þurrvörur sendar en unnið er hörðum höndum að því að bæta aðstöðu í Krambúðunum á viðkomandi stöðum svo einnig hægt sé að senda kæliog frystivörur.
„Vöruverð hefur lækkað um 15-30% í þeim öllum þeim verslunum sem Samkaup hafa tekið
yfir. Markmið okkar er bjóða upp á sem hagkvæmastar vörur fyrir viðskiptavini okkar,“ segir
Gunnar Egill. „Samkaupa líta á það sem samfélagslega skyldu sína að halda úti verslun og
störfum á landsbyggðinni og eru verslanir okkar hlutfallslega stórir vinnustaðir í sumum
þessara sveitarfélaga.“

Íbúum sveitarfélaganna býðst þjónustan frá og með deginum í dag, mánudeginum 7.
september. Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 12.00, degi fyrir afhendingu, og er
afgreiðslutími mismunandi eftir bæjarfélögum.

 

DEILA