Karfa kvenna: sigur og tap á Sauðárkróki

Meistaraflokkur kvenna hjá Vestra gerði góða ferð til Sauðárkróks um helgina og lék tvo leiki gegn heimastúlkum í Tindastóli. Ferðin var söguleg því fyrri leikurinn, sem fram fór á laugardag, var fyrsti meistaraflokksleikur kvennaliðs félagsins undir merkjum Vestra.

Seinni leikurinn var ekki síður sögulegur því í honum gerðu stelpurnar sér lítið fyrir og lönduðu fyrsta sigri meistaraflokks kvenna undir merkjum Vestra.

Fyrri leiknum lauk með sigri Tindastóls  74-54 (14-16, 25-10, 18-10, 17-18).

Stig Vestrakvenna í leiknum og tekin fráköst voru:

Olivia Janelle Crawford 16/13 fráköst, Sara Emily Newman 9/5 fráköst, Katla María Magdalena Sæmundsdóttir 8, Ivana Yordanova 8, Gréta Hjaltadóttir 5, Snæfríður Lilly Árnadóttir 4, Hera Magnea Kristjánsdóttir 2, Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir 1, Stefanía Silfá Sigurðardóttir 1.

Seinni leikurinn fór fram í dag og þá var annað upp á teningnum. Vestri vann leikinn með fimm stiga mun 49-54 (12-8, 13-13, 16-9, 8-24). Sigurinn vannst með góðri frammistöðu í fjórða leikhluta.

Frammistaða leikmanna Vestra:  Olivia Janelle Crawford 27/13 fráköst, Gréta Hjaltadóttir 12/7 fráköst, Sara Emily Newman 6, Ivana Yordanova 5, Snæfríður Lilly Árnadóttir 2/4 fráköst, Katla María Magdalena Sæmundsdóttir 2/9 fráköst, Stefanía Silfá Sigurðardóttir 0, Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir 0, Hera Magnea Kristjánsdóttir 0/4 fráköst.

Ekki er hægt að segja að aðdragandi ferðarinnar hafi verið eins og best verður á kosið. Þótt liðið hafi æft vel á undirbúningstímabilinu eru aðeins fáeinir dagar síðan það varð fullskipað þar sem Olivia Crawford þurfti eðlilega að vera í sóttkví við komuna til landsins. Fleiri Covid tengdar áskoranir komu til því skömmu fyrir brottför þurfti Pétur Már Sigurðsson þjálfari að fara í úrvinnslusóttkví. Liðið hélt því af stað þjálfaralaust norður snemma á laugardagsmorgun með farar- og liðsstjórann Jóhann Bæring Gunnarsson í broddi fylkingar.

Frá seinni leiknum er svo sagt á vefsíðu Vestra:

„Pétur fékk svo fararleyfi frá heilbrigðisyfirvöldum á laugardagskvöld og brunaði norður eldsnemma á sunnudagsmorgunn í tæka tíð til að stýra liðinu í seinni leiknum. Sá leikur var jafnari, þótt heimaliðið hafi haft yfirhöndina megnið af leiknum. Þegar síðasti leikhlutinn var rúmlega hálfnaður var Tindastóll kominn í 14 stiga forystu, 44-30. Á þessum tímapunkti steig Olivia Crawford upp, skoraði 5 stig í röð og minnkaði muninn í 9 stig. Þá tók Pétur leikhlé og má segja að sú herkænska sem lagt var upp með eftir það hafi gengið fullkomnlega upp. Olivia hélt áfram að vera atkvæðamikil sóknarlega og Sara Emily átti einnig mikilvægar körfur. Svæðisvörn liðsins gekk vel upp og geigaði hvert skot Tindastóls á fætur öðru af vinstri vængnum sem skilaði sér í góðum fráköstum Kötlu Maríu á hægri vængnum. Þegar aðeins rúmar tvær mínútur voru til leiksloka jafnaði Olivia leikinn og Sara kom Vestra svo yfir í næstu sókn. Vestrastelpur kláruðu leikinn síðan með prýði og sigldu sínum fyrsta sigri örugglega í höfn 49-54.“

DEILA