Hafnarsjóður Vesturbyggðar hefur til sölu flotbryggju, flekinn er um 20x3m og er staðsettur við Flókatóftir á Brjánslæk.
Bryggjan er skemmd og þarfnast lagfæringa.
Tilboðsfrestur er til og með 22. október.
Að sögn Elfars Steins Karlsson hafnarstjóri í Vesturbyggð hefur bryggjan ekki verið í notkun síðustu ár. Aðeins ein flotbryggja er í notkun á Brjánslæk en til stendur að bæta þá aðstöðu á næstu árum.
Miklar framkvæmdir eru nú við höfnina á Bíldudal og í undirbúningi er að bjóða út á næstunni landfyllingu sem mun koma sér vel vegna vaxandi umsvifa við höfnina.