Leyfi til veiða á ígulkerum 2020/2021

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi til veiða á ígulkerum fiskveiðiárið 2020/2021, sbr. reglugerð nr. 765/2020 um veiðar á ígulkerum.

Veiðileyfum skal úthluta til skipa sem stunda hafa veiðar á ígulkerum á síðustu þremur fiskveiðiárum.
Alls verða leyfin fjögur.
Ef fleiri en fjórir aðilar hafa stundað veiðarnar, þá skulu þau skip sem mestan afla hafa ganga fyrir öðrum við úthlutun.

Með umsókn skal fylgja samningur um vinnslu á ígulkerum í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða.

Í báðum tilfellum þarf staðfesting frá MAST að fylgja um að viðkomandi vinnsla hafi gilt vinnsluleyfi frá MAST.

Sækja skal um veiðileyfi í UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu, og skulu fylgja umsókninni upplýsingar um veiðar umsækjenda á sæbjúgum þrjú síðustu fiskveiðiár og samningur um vinnslu á sæbjúgum í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða.

Opið er fyrir umsóknir frá mánudeginum 17. ágúst til og með 23. ágúst 2020, en þá lýkur umsóknarfresti.

DEILA