Göngur og réttir á tímum COVID

Gefnar hafa verið út leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna COVID-19 hættustigs almannavarna. Leiðbeiningarnar voru unnar í samstarfi almannavarna, sóttvarnalæknis, Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændasamtaka Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Um er að ræða almennar leiðbeiningar um framkvæmd á göngum og réttum. Það er síðan á ábyrgð sveitastjórnar, sem fer með stjórn fjallskilamála, að tryggja að reglum um sóttvarnir sé fylgt eftir og gefa út frekari leiðbeiningar ef þurfa þykir.

Áhersla er lögð á að hver og einn beri ábyrgð á eigin athöfnum og að: „Við erum öll almannavarnir“.

Almenna reglan fyrir árið 2020 er að aðeins þeir sem hafa hlutverk mæti í göngur og réttir og er það
vegna 100 manna hámarksreglu. Börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin fjöldatakmörkun.

Hliðvarsla verður við aðkeyrslu að réttum og þangað inn verður aðeins hleypt þeim sem þar eiga erindi.

Allir sem taka þátt í göngum og réttum skulu hlaða niður smitrakningarappi almannavarna.

Nánari upplýsingar: https://bit.ly/3kRWVka

DEILA