Úthlutun úr Öndvegissjóði Brothættra byggða

Þann 9. júlí sl. voru 40 milljónum úr Öndvegissjóði Brothættra byggða úthlutað til sex verkefna í Brothættum byggðum.

Auglýst var síðastliðinn apríl, fjórtán umsóknir bárust um styrki að upphæð kr. 162,5 milljónir og hlutu sex verkefni styrk.

Öndvegissjóðurinn er hluti af aðgerðum vegna veirufaraldurs en Alþingi samþykkti að veita aukalega 100 m.kr. til Brothættra byggða á árinu 2020 m.a. til að hægt væri að styðja við stærri frumkvæðisverkefni íbúa sem skapa atvinnu í byggðarlögunum.

Styrkveitingar til verkefna á Vestfjörðum nema 24,3 milljónum af þeim 40 milljónum sem úthlutað var í heild. Tvö verkefni úr Árneshreppi, eitt frá Strandabyggð og eitt frá Þingeyri hlutu góðan stuðning Öndvegissjóðs Brothættra byggða.

Heildarlisti yfir styrkþega:

Hótel Djúpavík – Baskasetur 1.600.000,-

Sýslið verkstöð ehf. – Strandir.is 8.700.000,-

Salbjörg Matthíasdóttir – Kjötvinnsla í Árdal 5.700.000,-

Borgarfjarðarhreppur – Samfélagsmiðstöðin Fjarðarborg 10.000.000,-

Ungmennafélagið Leifur heppni Krossneslaug – aðdráttarafl sem sameinar 10.000.000,-

Tankur menningarfélag – Tankur 4.000.000,-

Verkefnið Brothættar byggðir miðar að víðtæku samráði og því að virkja þekkingu og getu íbúa byggðarlaga til að móta framtíðarsýn, markmið og lausnir. Enn fremur að virkja frumkvæði og samtakamátt íbúa og auka vitund þeirra um eigin þátt í þróun samfélagsins.

DEILA