Upplýsing, fagfélag bókasafns- og upplýsingafræða stendur annað hvert ár fyrir ráðstefnu í samvinnu við bókasöfnin á landinu.
Fyrirlesarar eru bæði erlendir sem innlendir og sækja ráðstefnuna starfsmenn almenningsbókasafana, skólasafna háskólabókasafna sem og sérsafna.
Næsti Landsfundur verður haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði dagana 24.-25. september 2020 og sjá bókasöfnin á Ísafirði sameiginlega um undirbúning, þ.e. Bókasafnið Ísafirði (almenningsbókasafnið), bókasafn Menntaskólans, skólasafn Grunnskólans á Ísafirði og bókasafn Háskólaseturs Vestfjarða.
Þetta er í fyrsta sinn sem þessi fagráðstefna fer fram á Vestfjörðum.
Að þessu sinni er yfirskriftin „Í upplýstu umhverfi“.