Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst

Laugardaginn 20. júní útskrifaði Vilhjálmur Egilsson rektor 102 nemandur við hátíðlega athöfn. Nemendahópurinn samanstóð af nemendum úr viðskiptadeild, félagsvísinda- og lagadeild og Háskólagátt.

Í fararbroddi í fjarnámi

Í útskriftarræðu sinni talaði Vilhjálmur sérstaklega um þær undarlegu aðstöður sem sköpuðust í háskólasamfélaginu vegna Covid 19 faraldursins í vetur og þá einstöku stöðu sem Háskólinn á Bifröst var í; „Háskólinn á Bifröst er vissulega í fararbroddi í fjarnámi núna meðal íslenskra háskóla.  Við byggjum fjarnámið upp á eigin forsendum en erum ekki að reyna að flytja út skólastofuna.  Við reynum að haga fjarnáminu þannig að nemandinn geti lært óháð stað og óháð tíma.  Þetta er okkar forskot.  Við fengum sannarlega staðfestingu á forystu okkar í fjarnáminu í COVID 19 ástandinu í mars og apríl.  Skólastarfið hjá okkur gekk hnökralítið fyrir sig.  Ekki þurfti að gefa afslátt af neinum kröfum.  Aðrir skólar þurftu að reyna að nálgast það sem við erum að gera.“

Síðasta útskrift Vilhjálms sem Rektors

Þetta var síðasta útskrift Vilhjálms sem rektor við skólann en hann hefur verið rektor skólans síðan árið 2013. Hátíðin markar því ákveðin tímamót fyrir skólann, en Margrét Jónsdóttir Njarðvík tekur við sem rektor nú í sumar. Að því tilefni kom Vilhjálmur inn á tíma sinn við skólann í ræðu sinni. „Sjö ára tími minn hér í skólanum hefur verið góður kafli í lífi mínu.  Fyrstu árin voru miklir erfiðleikar.  Reksturinn var þungur vegna mikils niðurskurðar á framlögum ríkisins og afskrifta á útistandandi kröfum frá fyrri árum.  En með áræðni, þrautseigju og samstöðu tókst okkur að snúa rekstrinum og þróun skólans okkur í vil.  Starfsfólk skólans gerði meira en skyldan bauð.  Háskólinn á Bifröst er orðin sterk stofnun með mikil tækifæri.  Háskólinn á Bifröst stendur nú á stökkpalli inn í framtíðina.”. Það er óhætt að segja að aukinn hatíðarljómi hafi legið yfir athöfninni dag í tilefni þessa tímamóta. Vilhjálmur hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir skólann, á erfiðum tímum, og skilur við skólann með mesta fjölda nemenda og umsókna sem sést hefur á Bifröst.

Verðlaun og útskriftarræður

Útskriftarverðlaun í grunnnámi hlutu, Gísla Gamm  viðskiptadeild og Friðrik Þórsson, félagsvísinda- og lagadeild. Í meistaranámi hlutu útskriftarverðlaun, þau Eva Hrund Einarsdóttur viðskiptadeild og Finnur Bjarnason, félagsvísinda- og lagadeild. Útskriftarverðlaun í Háskólagátt hlaut Haukur Þór Sigurbjörnsson Að auki fengu tveir nemendur felld niður skólagjöld á haustönn vegna framúrskarandi námsárangurs, þau Bjarni Heiðar Halldórsson, viðskiptadeild og Líney Lilja Þrastardóttir félagsvísinda- og lagadeild.

Ræðumaður fyrir hönd grunnnema viðskiptadeildar var Thelma Dögg Harðardóttir og fyrir hönd grunnnema félagsvísinda- og lagadeildar var Kristófer Kristjánsson. Fyrir hönd meistaranema í viðskiptadeild flutti Monika Katarzyna Waleszcynska ávarp og Arnhildur Ásdís Kolbeinsdóttir fyrir hönd meistaranema í félagsvísinda- og lagadeild, þá flutti Sigrún María Grétarsdóttir ræðu fyrir hönd háskólagáttarnema.

Karlakórinn Söngbræður undir stjórn Viðar Guðmundssonar sá um söngatriði við útskriftina við undirleik Birgis Þórissonar. Að athöfn lokinni þáðu gestir léttar veitingar.

 

DEILA