Aðalfundur Vestra í kvöld

Aðalfundur íþróttafélagsins Vestra 2020 verður haldinn í kvöld fimmtudaginn 4. júní.

Fundurinn fer fram í Vallarhúsinu á Torfnesi og hefst kl. 20:00.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og önnur mál.

Félagsmenn og aðrir sem koma að starfi félagsins eru hvattir til að mæta á fundinn.

Vestri er deildaskipt íþróttafélag þar sem starfa blakdeild, hjólreiðadeild, knattspyrnudeild, körfuknattleiksdeild og sunddeild og hafa deildirnar nú þegar haldið sína aðalfundi.

DEILA