Taktu þátt í að endurheimta náttúruna

Landgræðslan sinnir því mikilvæga hlutverki að endurheimta vistkerfi. Grundvöllur okkar vinnu er öflugt og náið samstarf við landeigendur og óskum við nú eftir fleiri samstarfsaðilum í þann góða hóp.

Landgræðslan auglýsir nú eftir umsóknum um styrki til endurheimtar votlendis. Markmið endurheimtar er að hækka vatnsstöðu framræstra mýra til þess að endurheimta lífríki og jarðvegsgæði landsins ásamt því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Landgræðslan sér alfarið um úttekt á svæðinu, skipulag og fjármögnun framkvæmdar.

Þar sem ríki og sveitarfélög eru landeigendur víða er mikilvægt að þar séu teknar ákvarðanir um þátttöku í verkefninu ef ástæða þykir til.

Svæðin eru kortlögð fyrir og eftir framkvæmd og aðgerðir skráðar í loftslagsbókhald ríkisins.

Við hvetjum áhugasama til þess að hafa samband í síma 488-3000 eða senda tölvupóst á verkefnisstjóra: idunn@land.is.

DEILA