Stefnir í tvöföldun nemendafjölda á sumarönn á Bifröst

Góður áhugi er á námi á sumarönn á Bifröst. Háskólinn opnaði fyrir umsóknir um námið fyrir viku síðan og umsóknir eru strax farnar að berast.   Nemendafjöldinn á sumarönn gæti tvöfaldast ef marka má fyrstu viðbrögð.

Þetta kemur fram í fréttatilynningu frá Háskólanum á Bifröst.

Háskólinn hefur nú opnað fyrir umsóknir nýrra nemenda sem ýmist vilja innrita sig formlega í nám við skólann strax á sumarönn eða taka einstök námskeið.  Ennfremur hefur verið fjölgað námskeiðum fyrir núverandi nemendur.

Háskólinn á Bifröst hefur boðið uppá reglulegt nám á sumarönn fyrir nemendur í grunnnámi sem hafa þannig getað stytt námstíma sinn.  Nú er í fyrsta sinn boðið uppá námskeið í meistaranámi auk grunnnáms og námskeiðum í Háskólagátt fjölgað.

Umferð inn á heimasíðu skólans jókst um 80% eftir að námið var kynnt og ljóst að þúsundir einstaklinga vildu kynna sér möguleikana.  Það skiptir miklu máli að námskeiðin eru kennd í fjarnámi en Háskólinn á Bifröst er í farabroddi í fjarnámi meðal íslenskra háskóla og skólinn hefur starfað hnökralítið nú þegar mikil röskun hefur orðið almennt á skólastarfi í landinu.

DEILA