Gamanmyndahátíð: heppinn í ástum sigraði

Sigurvegarnir taka á móti verðlaunum sínum úr höndum Bjarka Reynissonar, eiganda Reykjavík Foto. Mynd: aðsend.

Gamanmyndahátíð Flateyrar í samstarfi við Reykjavík Foto stóðu fyrir 48 stunda gamamyndakeppni á dögunum, þar sem þátttakendur fengu aðeins 48 klst til að fullvinna stutta gamanmynd með þemanu Heppni/Óheppni. Alls voru á þriðja tug stuttmynda sendar inn í keppnina, þar sem landsmenn gátu horft á þær og kosið sína uppáhalds gamanmynd.

 

Kosningin stóð yfir á heimasíðu Gamanmyndahátíðarinnar, www.IcelandComedyFilmFestival.com og er hægt að horfa á allar innsendar myndir þar.

Það var myndin Heppinn í Ástum eftir þá Árna Þór Guðjónsson, Jón Ólaf Hannesson og Killian G.E Briansson Fitzgibbon sem sigraði í kosningunni og hlutu þeir að launum glæsilega Canon myndavél frá Reykjavík Foto.

 

Allir þátttakendur í 48 stunda gamanmyndakeppninni fengu þar að auku hátíðararmbönd á Gamanmyndahátið Flateyrar, sem er án efa fyndnasta kvikmyndahátíð Íslands. Hátíðin í ár fer fram dagana 13.-16. ágúst. Á hátíðinni verður sýndar bæði nýjar og gamlar innlendar og erlendar gamanmyndir í bland við uppistand, leiksýningar, tónleika og fleira.

 

Hægt er að horfa á sigurmyndina hér:

https://www.youtube.com/watch?v=OlElaRozxWU&feature=emb_title

 

Hægt er að horfa á allar myndirnar sem tóku þátt í keppninni hér:

https://www.icelandcomedyfilmfestival.com/48-stunda-gamanmyndakeppni

 

DEILA