Það er ekki að spyrja því, það þegar Trump fremur eitthvert axarskaftið þá er Indriði á Skjaldfönn óðara búinn að hrista saman vísu um það. Nú eru það lækningar með frostlegi sem Indriði hnaut um.
TRUMPÍSKAR LÆKNINGAR.
Löngum var ég læknir minn,
listfengur í þeirri grein.
Frakkur drakk ég frostlöginn,
fljótt hann læknar sérhvert mein.