COVID-19: Upplýsingafundur mánudaginn 20. apríl á Ísafirði

Haldinn verður upplýsingafundur um stöðuna í Ísafjarðarbæ vegna Covid-19 mánudaginn 20. apríl 2020 kl. 15:00.

Fundurinn verður sendur beint út á Facebook (https://www.facebook.com/isafjardarbaer/) og þar verður hægt að senda inn fyrirspurnir.

Best er þó að senda spurningar inn fyrirfram því þá er hægt að undirbúa svör betur.

Dagskrá

Framsöguerindi:

Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri
Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir‎, yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Karl Ingi Vilbergsson, lögreglustjóri lögreglunnar á Vestfjörðum

Umræður og fyrirspurnir

DEILA