Hraunskirkja í Keldudal

Keldudalur gengur inn af Dýrafirði, og er Hraun um 10 km í loftlínu vestur frá Þingeyri, en komst þó seint í vegasamband heldur var aðgengi einkum frá sjó.Hraunskirkja var reist árið 1885. Aðalsteinn Pálsson bóndi í Hrauni sá um smíðina og gaf söfnuðinum húsið. Kirkjan stendur rétt utan við gamla kirkjugarðinn en innan hans hafa eldri kirkjur í Hrauni staðið. Kirkjan er lokuð almenningi.

Hraunskirkja er af elstu formgerð turnlausra íslenskra timburkirkna. Sérkenni kirkjunnar er þakspónninn en þannig var hún smíðuð í upphafi. Fljótlega var hún þó klædd með bárujárni.

Kirkjan var aflögð sem sóknarkirkja árið 1971 en dalurinn fór í eyði árið 1987. Um tíma stóð til að rífa hana en fyrir tilstuðlan Þjóðminjasafns Íslands var horfið frá því og gagngerar viðgerðir fóru fram á vegum safnsins árin 1998-1999. Hún var tekin aftur í notkun árið 2000 og er nú í vörslu Þjóðminjasafnsins.
Í Hraunskirkju eru merkir gripir en m.a. er talið að prédikunarstóllinn sé verk sr. Hjalta Þorsteinssonar í Vatnsfirði (1692-1742).

Altaristöflurnar eru tvær og eru þær hvor upp af annarri. Á þeirri neðri er áletrunin „Eggerd Ionsen A. Røyn 1751“ en óvíst er um aldur þeirrar efri.

Skammt frá Hraunskirkju er Gvendarbrunnur, sem er uppsprettulind, og þótti sjálfsagt að taka þaðan vatn þegar skírt var í kirkjunni.

DEILA