Hallgrímur Sveinsson, Brekku Dýrafirði er látinn. Hann lést á heimili sínu gær. Hallgrímur var fæddur 28. júní 1940.
Hallgrímur Sveinsson er f.v. kennari og skólastjóri á Þingeyri og einnig Hrafnseyri.
Hallgrímur Sveinsson var í áratugi staðarhaldari á Hrafnseyri við Arnarfjörð og lagði sig fram um að halda nafni Jóns Sigurðssonar forseta, sögu hans og arfleifð á lofti. Hann og eiginkona hans, Guðrún Steinþórsdóttir, bjuggu á Hrafnseyri í rúm 40 ár, ráku þar fjárbúskap og sáu um vörslu og umhirðu staðarins fyrir hönd Hrafnseyrarnefndar.
Undir nafni Vestfirska forlagsins hefur Hallgrímur í um tuttugu og fimm ára skeið gefið út fjölda bóka, sem langflestar eru helgaðar vestfirsku efni með einum eða öðrum hætti.
Vestfirska forlagið hefur á síðari árum gefið út allt upp í tuttugu og þrjá titla á ári.
Hallgrímur var afkastamikill í ritstörfum og skrifaði fjöldann allan af greinum, ýmist einn eða með öðrum, til birtingar á vef Bæjarins besta, sem hann studdi með ráðum og dáð.
Að leiðarlokum eru Hallgrími færðar þakkir fyrir framlag sitt og aðstandendum hans eru sendar innilegar samúðarkveðjur.