Rannsókn á launakerfum í sjávarútvegi

Norræna ráðherranefndin um sjávarútveg og fiskeldi, ákvað  nú í janúar 2020, að veita styrk af fjárlögum nefndarinnar til rannsóknar á launakerfi í sjávarútvegi í norrænu ríkjunum og gagnkvæmum áhrifum þess á stjórnkerfi fiskveiða og sjálfbærni.

Kristján Þórs Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra  hafði tekið upp til umræðu á vettvangi norræns samstarfs í fiskimálum hvort framkvæma mætti samanburð á kjörum og launakerfum sjómanna í hinum norrænu ríkjum, sérstaklega með tilliti til umræðu sl. haust um verðmun á uppsjávarafla hér á landi og í Noregi.

Kristján Þór gerði grein fyrir verkefninu á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn. Í verkefninu verður leitast við að greina og lýsa launakerfi í sjávarútvegi í norrænu ríkjunum, þróun þess og skiptingu fiskveiðirentu milli sjómanna, eigenda skipa og handhafa aflakvóta.

Horft er til þess að sú þekking sem verði til með verkefninu geti nýst við töku ákvarðana á sviði fiskveiðistjórnar í krafti bestu þekkingar um hagræna þætti og sjálfbærni. Stefnt er að því að niðurstöður verkefnisins verði kynntar á norrænni fiskimálaráðstefnu í Færeyjum næsta haust.

Norræna hugveitan um fiskveiðar, Nordic Marine Think Tank, ber ábyrgð á verkefninu en verkefnisstjóri er Carl-Christian Schmidt, ráðgjafi og fv. skrifstofustjóri sjávarútvegs- og fiskeldisskrifstofu OECD. Þátttakendur í verkefninu er fræðimenn í Danmörku, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi og Noregi.

 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Ég hef verið þeirrar skoðunar að það sé nauðsynlegt að leiða í ljós skýringar á þeim verðmun sem hefur verið í umræðunni enda hefur sú umræða einkennst af tortryggni um kjör sjómanna. Það er mikill styrkur fyrir þetta verkefni að öll norrænu ríkin koma að því og því verður hægt að bera saman upplýsingar milli landa. Það er fyrirhugað að niðurstöður liggi fyrir í haust og vonandi munum við í kjölfarið hafa betri mynd af þeim mun sem kann að vera milli landa.“

 

 

 

DEILA