Íbúafundur á Ísafirði í kjölfar snjóflóðanna á Flateyri og í Súgandafirði

Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ og lögreglustjórinn á Vestfjörðum boða einnig til íbúafundar á Ísafirði í kjölfar snjóflóðanna á Flateyri og í Súgandafirði þann 14. janúar 2020.

Fundurinn fer fram í fundarsal á fjórðu hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði og hefst klukkan 17 þriðjudaginn 21. janúar.

Fundarstjóri verður Rögnvaldur Ólafsson frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Dagskrá:
Ávarp bæjarstjóra
Snjóflóðin 14. Janúar 2020. Tómas Jóhannesson, fagstjóri hjá Veðurstofu Íslands
Skipulag áfallahjálpar. Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar
Umræður

Á fundinum verða auk bæjarstjóra og fulltrúa lögreglustjórans á Vestfjörðum fulltrúar frá eftirfarandi aðilum:
Ofanflóðasjóði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Rauða krossi Íslands
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Umhverfisstofnun
Svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar

DEILA