Vestri- Knattspyrna

Hinn 26 ára spænski miðjumaður Ignacio Gil Echevarria hefur skrifað undir samning við Vestra. Hann hefur leikið síðustu tvö tímabil með Þór frá Akureyri í Inkasso-deildinni, en mun taka slaginn með Vestra á næsta tímabili. Hann var valinn í lið ársins í Inkasso-deildinni árið 2018. Það er ljóst að hér er um að ræða gríðarlegan liðsstyrk fyrir Vestra.

Þá hefur Vestri endurnýjaði samninga við þrjá leikmenn sem léku með liðinu á liðnu sumri. Það eru þeir Brenton Muhammad markvörður fæddur árið 1990, kom til félagsins árið 2018 frá Tindastól og hefur spilað 17 deildar- og bikarleiki fyrir félagið. Brenton er landsliðsmarkvörður Antígva og Barbúda. Daniel Badu sem hefur leikið með Magna, Njarðvík, BÍ/Bolungarvík og Vestra. Hann á að baki yfir 200 leiki í öllum keppnum á Íslandi og hefur reynst okkur Vestfirðingum afar traustur síðan hann fluttist vestur, árið 2012 og Friðrik Þórir Hjaltason sem á að baki yfir 90 leiki fyrir félagið í öllum keppnum. Hann var mjög öflugur fyrir liðið í sumar og var einn af lykilleikmönnum liðsins.

DEILA