Strandavegur (643)-Drög að tillögu að matsáætlun

Þann 13 desember birti Vegagerðin á vef sínum:

Vegagerðin auglýsir hér drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Strandavegi (653) um Veiðileysuháls á kafla sem nær frá Kráku í Veiðileysufirði að Kjósará í Kjósarvík. Framkvæmdin er í sveitarfélaginu Árneshreppi.
Núverandi Strandavegur er 11,6 km langur en gert er ráð fyrir að nýr vegur verði 11,8 km langur. Áætlanir eru um að meta umhverfisáhrif einnar veglínu, þ.e.a.s. veglínu 708.

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á Vestfjörðum og hafa þar með jákvæð áhrif á samfélagið. Með nýjum vegi um Veiðileysuháls verða samgöngur í Strandasýslu áreiðanlegri og öruggari. Að loknum framkvæmdum verður mögulegt að halda veginum á milli Bjarnarfjarðar og Djúpuvíkur opnum allan ársins hring sé á annað borð ferðaveður.
Drög að tillögu að matsáætlun eru kynnt hér á heimasíðu Vegagerðarinnar, http://www.vegagerdin.is/framkvaemdir/umhverfismat/matsaetlun/ samkvæmt reglugerð 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum.

Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur til 20. janúar 2020. Athugasemdir skal senda með tölvupósti til helga.adalgeirsdottir@vegagerdin.is eða til Vegagerðarinnar, Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri.

Á vef Vegagerðarinnar er tillagan í heild sinni ásamt teikningum.

DEILA