Frank Asche, prófessor í hagfræði við University of Florida hélt fyrirlestur í gær í Háskóla Íslands og fjallaði um þær miklu breytingar sem orðið hafa á fiskmörkuðum á undanförnum áratugum.
Í máli hans kom fram að stöðnun á framboði á villtum fiski og miklar framfarir í eldistækni hafa leitt til stöðugt vaxandi hlutdeildar fiskeldis á mörkuðum. Hin mikla stjórn á framleiðslu sem einkennir fiskeldi hefur jafnframt leitt til mikilla breytinga á virðiskeðjum fisks og markaðssetningu fiskafurða. Fiskeldi hefur þegar náð ráðandi markaðsstöðu á neytendamarkaði. Náttúrulegar takmarkanir framleiðslu á villtum fiski þýða að vöxtur í framboði mun í framtíðinni nær einungis koma frá fiskeldi.
Það var skýr niðurstaða prófessors Frank Asche að eldið muni verða árið 2040 mikilvægasta í framleiðslu á sjávarvörum. Hefðbundnar fiskveiðar (á villtum fiski) muni ekki geta skilað meira framboði af sjávarafurðum og því muni aukningin koma einkum frá fiskeldinu.
Fundarstjóri var Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands.