Talað töfrandi tungum: Málþing um fjöltyngi og fjölmenningu

Tungumálatöfrar á Ísafirði er árlegt námskeið fyrir fjöltyngd börn. Málþing verður haldið um
námskeiðið og framtíð þess á Hrafnseyri 8. júní nk. Efniviður málþingsins er máltaka barna,
glötun tungumáls og mikilvægi þess að eiga sameiginlegt tungumál. Kynntar verða þær
kennsluaðferðir sem beitt er á Tungumálatöfrum og skoðuð tengsl við önnur verkefni sem
snúa að íslenskukennslu fyrir fjöltyngd börn og unglinga. Þá verður skoðað mikilvægi
námskeiða sem þessa þegar kemur að aðlögun innflytjenda með tilliti til aukins lýðræðis- og menningarlæsis.

Eliza Reid, forsetafrú Íslands, opnar málþingið. Síðan taka til máls leiknir og
lærðir á sviði fjölmenningar og fjöltyngis. Málþingið er styrkt af prófessorsembætti Jóns
Sigurðssonar og er haldið í samvinnu við Háskólasetur Vestfjarða og Fjölmenningarsetur. Málþingið er ætlað áhugafólki um fjöltyngi og fjölmenningu. Það er öllum opið og er
hádegisverður í boði Tungumálatöfra. Hér má finna skráningarform fyrir málþingið. Einnig er hægt að senda tölvupóst á: tungumalatofrar@gmail.com

Tungumálatöfrar eru ætlaðir börnum 5-11 ára með það að markmiði að efla íslenskukunnáttu þeirra. Áhersla í kennslu er lögð á listsköpun og leik sem hefur gefið góða raun.
Kennarar leiða börnin í gegnum æfingar sem sem efla málvitund þeirra og lagt er upp með
æfingar sem styrkja sjálfsmynd þeirra. Bakgrunnur kennara er fjölbreyttur og hafa þeir ýmist til að bera kennaramenntun eða menntun í listgreinum, svo sem tónlist, myndlist og
sviðslistum.
Tungumálatöfrar, sem í ár fara fram dagana 5.-10. ágúst, eru haldnir með stuðningi
Ísafjarðarbæjar og Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða. Námskeiðið fer fram í Menningarmiðstöðinni Edinborg á Ísafirði sem rekur verkefnið í samstarfi áhugamannahóp um fjöltyngi og fjölmenningu. Námskeiðið er sérstaklega hugsað fyrir íslensk börn sem hafa verið búsett utan landssteinanna og fyrir börn af erlendum uppruna sem sest hafa að hér á landi. Börnin koma úr mismunandi fjölskyldusamsetningum: sum eiga íslenska foreldra, önnur erlenda foreldra og einhver hvort tveggja.

Tungumálatöfrar hafa hlotið mikla athygli og ljóst er að þörf er á námskeiði sem þessu.
Hefur námskeiðið skapað umræðu um aðgang að íslenskukennslu fyrir íslensk börn í útlöndum og hefur verið óskað eftir námskeiðinu á fleiri stöðum um landið. Ein leið til að efla umræðuna og deila þekkingunni er með málþingi sem þessu. Til að fræðast frekar um
námskeiðið og málþingið má skoða Fésbókarsíðu Tungumálatöfra.

Dagskrá málþingsins

11:30 Valdimar J. Halldórsson staðarhaldari býður gesti velkomna og talið verður í samsöng.

Opnunarávarp: Eliza Reid, forsetafrú opnar málþingið.

Móðurmálið og margbreytileikinn: Hugvekja Önnu Hildar Hildibrandsdóttur forgöngukonu Tungumálatöfra.

Reynslusögur kennara Tungumálatöfra: Jón Gunnar Biering Margeirsson, gítarkennari í Tónlistarskóla Ísafjarðar og kennari á Tungumálatöfrum.

ÍSAT áherslur Menntamálastofnunar: Hulda Karen Daníelsdóttir sérfræðingur í íslensku sem öðru tungumáli.

Umræður

13:00 – 14:00 Hádegisverður og ratleikur

14:00 – 15:00

Máltaka barna í umróti þjóðfélags- og tæknibreytinga: Sigríður Sigurjónsdóttir prófessor við Háskóla Íslands

Fræðikona og foreldri: Að ala upp tvö tvítyngd börn: Hugvekja Catherine Chambers, fag-stjóri meistaranáms í haf strandsvæðastjórnun, Háskólasetur Vestfjaða.

Umræður

15:00 – 15:30 Kaffi og kökur í burstabænum

15:30 – 16:30

Málbreytingar, málvillur og málstaðall: Eiríkur Rögnvaldsson prófessor við Háskóla

Íslands.

Lifandi orð og lærdómur að tendra þekkingarljós með töfrum tungumálsins: Hugvekja Önnu Sigríðar Sigurðardóttur, kennslustjóra við Lýðháskólann á Flateyri.

Um samband mitt við íslenska tungumálið: Hugvekja Hanaa Hasan Nfawa ALsaedi,

starfskona Grunnskólans í Súðavík og Hanin Murtadha Kamil Alsaedi, nemandi Grunnskólans í Súðavík.

Umræður og lokaorð: Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða.

Fundarstjórn er í höndum verkefnastýru Tungumálatöfra Vaida Bražiūnaitė.

Málþingið er sett upp með tilliti til þeirra sem koma fljúgandi til Ísafjarðar að morgni dags (lending á Ísafirði 9:55) og fljúga aftur til Reykjavíkur að málþingi loknu (brottför frá Ísafirði

19:20). Fyrir þá sem vilja verður sameinast í einkabíla við Edinborgarhúsið á Ísafirði klukkan 10:00.

DEILA