Strandabyggð: Hamingjudagar 2019

Frá hamingjudögum 2012. Mynd: Strandabyggð.

Hamingjudagar 2019 verða haldnir 28. – 30.júní.

Fyrstu Hamingjudagarnir á Hólmavík voru haldnir árið 2005 og hafa þeir verið árviss viðburður æ síðan.
Tilgangurinn með því að halda Hamingjudaga er tvíþættur. Annars vegar er hátíðin átthagamót fyrir brottflutta Strandamenn og Hólmvíkinga, vettvangur til að hittast og eiga góða stund á heimaslóð.

Hinn megintilgangurinn með hátíðinni er að sem flestir taki þátt í hátíðinni með sínum hætti á sínum forsendum. Með virkri þátttöku í hátíðinni hjálpa menn til við að uppfylla meginmarkmið hennar sem er að hver einasti íbúi í Strandabyggð ásamt gestum hátíðarinnar finni fyrir innri hamingju, hugarró, gleði og kærleika í hverju skrefi.

 

Hafinn er undirbúningur fyrir hátíðina í ár og kemur fram á vef Strandabyggðar  að leitað er eftir  áhuga einstaklinga, fyrirtækja og samtaka á svæðinu á þátttöku/sýnileika  þessa daga. Í fyrra var  t.d. vöfflukaffi í boði fyrir gesti og gangandi hjá Hólmadrangi og gekk það vel, segir í fréttinni.

Ungmennin í Strandabyggð hafa komið með hugmyndir og hvatt til að litið verði til fyrri daga. Þau eiga þá við hverfalitina, hverfagrill, marseringu, markað o.fl.

Eru áhugasamir beðnir um að hitta tómstundafulltrúa  Strandabyggðar í Hnyðju, húsnæði sveitarsfélagsins  miðvikudaginn 15.maí kl.16-18 eða  senda línu á tomstundafulltrui@strandabyggd.is  eða hringja í síma 4513511/6967046.

DEILA