Bann við notkun eiturefnisins metanóls í rúðuvökvum

Nokkuð er um að rúðuvökvar sem innihalda metanól hafi verið til sölu hér á landi. Umhverfisstofnun hefur í nokkur skipti þurft að hafa afskipti af því þegar hættumerkingum á slíkum vörum hefur verið ábótavant. Nú styttist hins vegar í að þeir hverfi alfarið úr hillum verslana, því frá morgundeginum, 9. maí, verður bannað að setja á markað fyrir almenning rúðuhreinsi- og afísingarvökva sem innihalda 0,6 % metanól eða meira. Bannið er sett fram í reglugerð framkvæmdastjórnar ESB sem innleidd var í íslenskan rétt í september á síðasta ári.

Umhverfisstofnun mun fylgja banninu eftir þegar það hefur tekið gildi og biður neytendur að láta vita ef þeir verða varir við slíkar vörur á markaði. Á vef stofnunarinnar má senda inn ábendingar hvort heldur sem er undir nafni eða nafnlaust.

DEILA