Súðavík óskar eftir fundi um hafnasamlag við Ísafjörð

Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur fengið erindi frá sveitarstjóra Súðavíkurhrepps dagsett 7. febrúar, þar sem óskað er eftir fundi vegna mögulegrar sameiningar hafnarsjóða Súðavíkurhrepps og Ísafjarðarbæjar.

Er bréfið sent í framhaldi af kynningu á skýrslu Hafnarsambands Íslands um mögulega sameiningu hafnasjóðanna.

Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar bókaði á fundi sínum í gær að hún tæki jákvætt í erindið, en leggur áherslu á að möguleg stofnun hafnasamlags hafi ekki áhrif á uppbyggingaráform hafna Ísafjarðarbæjar, og leggur til við bæjarstjórn að bæjarstjóra og hafnarstjóra verið falið að leiða viðræður við fulltrúa Súðavíkurhrepps.

DEILA