Rauðhetta í Edinborgarhúsinu

Á laugardaginn kemur, þann 30. mars kl 13 verða í Edinborgarhúsinu  sýndur fjölskyldusöngleikur þrjú klassísk ævintýri. Það er leikhópurinn Lotta sem kemur í heimsókn.

Stórskemmtilegur fjölskyldusöngleikur með Rauðhettu og úlfinum, Hans og Grétu og grísunum þremur, klassísk ævintýrablanda í boði Leikhópsins Lottu.

Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Hópurinn, sem hefur sérhæft sig í sýningum utandyra, er nú annan veturinn í röð kominn inn til okkar í Tjarnarbíó. Rauðhettu setti hópurinn fyrst upp árið 2009 en nú tíu árum síðar verður rykið dustað af þessu skemmtilega verki og fært nýjum og gömlum áhorfendum í glænýjum búningi.

Ævintýrið um Rauðhettu og úlfinn þekkja allir en í meðförum Lottu hefur tveimur þekktum ævintýrum til viðbótar verið bætt í leikinn. Það eru sögurnar um grísina þrjá og systkinin Hans og Grétu. Þá eru í verkinu meira en 10 stórskemmtileg lög sem binda söguna saman. Úr verður gómsætur ævintýrakokteill sem enginn má láta framhjá sér fara.

Menningarmiðstöðin Edinborg.

DEILA