Rannsóknarsetur um sveitarstjórnarmál

Föstudaginn 5. apríl næst komandi verður formleg opnun Rannsóknaseturs um sveitarstjórnarmál í Háskóla Íslands á Laugarvatni. Í tilefni dagsins mun Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra heimsækja rannsóknasetrið ásamt fleiri góðum gestum.

Rannsóknasetur um sveitarstjórnarmál er hluti af starfsemi Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og er það starfrækt með stuðningi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Rannsóknasetrið er í senn rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun fyrir sveitarstjórnarstigið. Markmið þess er að efla og styðja við rannsóknir á sveitarstjórnarmálum og auka faglega þekkingu kjörinna fulltrúa sveitarfélaganna og starfsmanna í stjórnsýslu þeirra. Verkefnin eru af ýmsum toga og miða þau flest að því að styrkja starfsemi sveitarfélaganna í heild sinni en rannsóknasetrið mun einnig taka að sér sértæk verkefni fyrir sveitarfélögin í formi þjónustuverkefna meðal annars. Rannsóknarstjóri setursins er Eva Marín Hlynsdóttir, dósent í opinberri stjórnsýslu við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, en verkefnisstjóri þess með aðsetur á Laugarvatni er Helga Kristín Sæbjörnsdóttir.

Málstofa um stöðu og áskoranir kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum

Í undanfara opnunarinnar verður haldin málstofa þar sem Colin Copus, emeritus prófessor við De Montfort háskólann í Leicester á Englandi, mun halda fyrirlestur sem ber heitið: Staða kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og samspil við embættismenn: Í ljósi æ flóknari verkefna, vaxandi áreitis og aukinna krafna íbúa. Málstofan er haldin í húsnæði Háskóla Íslands á Laugarvatni en hún verður einnig send út á netinu í streymi. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis.

DEILA