7 mkr. styrkúthlutun úr sjóðnum: Öll vötn til Dýrafjarðar

Á myndinni eru: Agnes Arnardóttir verkefnastjóri, Arnhildur Lilý Karlsdóttir, Kristján Gunnarson sem tekur á móti styrk fyrir hönd dóttur sinnar Marsibil G. Kristjánsdóttur, Jón Sigurðsson, Birgir Thomsen Karlsson fyrir Golfklúbbinn Glámu á Þingeyri, Wouter Van Hoymissen, Borgný Gunnarsdóttir, Arnar Sigurðsson og fulltrúar verkefnastjórnar Arna Lára Jónsdóttir og Sigríður Ó. Kristjánsdóttir.

Auglýst var eftir styrkumsóknum 17. desember 2018 úr sjóði sem verkefnisstjórn Allra vatna til Dýrafjarðar veitir úr í umboði Byggðastofnunar fyrir verkefnastyrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð.

Umsóknarfrestur rann út 15. janúar 2019. Til úthlutunar voru 7 milljónir. Alls bárust 39 umsóknir sem er metfjöldi á landsvísu. Aldrei hafa borist eins margar umsóknir í tengslum við úthlutun í brothættum byggðum. Heildarumfang verkefna er umsóknir lúta að er um 120 milljónir. Sótt var um rúmlega 30 milljónir. Allt voru þetta umsóknir sem féllu vel að verkefninu Öll vötn til Dýrafjarðar. Reynt var að velja sem fjölbreyttust verkefni og m.a. var stuðst við stigagjöf eftir mat á tilteknum þáttum.

16 styrkir  7 milljónir króna

Úthlutað var styrkjum til 16 verkefna tengdum menningu og listum, atvinnuuppbyggingu og nýsköpun. Allt eru þetta verkefni sem verkefnisstjórn telur líkleg til árangurs og að þau muni hafa jákvæð áhrif á Þingeyri og við Dýrafjörð.

Verkefnin sem hlutu styrk voru þessi:

Blábankinn – Uppfærsla Þingeyrarvefsins                         180.000 kr.

Pálmar Kristmundsson – Listaakademían á Þingeyri          500.000 kr.

Pálmar Kristmundsson – The Tank                                 1.000.000 kr.

Samfélagsmiðstöðin á Þingeyri ses (Blábankinn)

– Stafrænir flakkarar og störf án staðsetningar               1.000.000 kr.

Borgný Gunnarsdóttir

– Námskeið og fyrirlestrar Víkingaskóla Skálans                570.000 kr.

Sébastien Biet – Bicycle week                                            90.000 kr.

Austan Mána efh – Sköpunarsveimur                                400.000 kr.

Golfklúbburinn Gláma Þingeyri – Aðstaða                          980.000 kr.

Pálmar Kristmundsson

– Hjólreiðakeppnin Ísafjörður-Þingeyri                              100.000 kr.

Wouter Van Hoeymissen

– Invite one family per year 2019-2020                            500.000 kr.

Wouter Van Hoeymissen – Wall Pantings in Þingeyri           300.000 kr.

Jón Sigurðsson – Hljóðfærasafn                                        500.000 kr.

Sébastien Biet – Graphic desing courses                              80.000 kr.

Kristín Þórunn Helgadóttir

– Handverkssýning/Opin vinnustofa                                    200.000 kr.

Marsibil G. Kristjánsdóttir

– Gíslasaga víkingaviðburðir og námskeið                           400.000 kr.

Wouter Van Hoeymissen

– Invite Yasuaki Tanago to Þingeyri 2019                             200.000 kr.

 

 

DEILA