57. Kirkjuþingi lýkur um helgina

Háteigskirkja.

Laugardaginn 2. mars hefst framhaldskirkjuþing í Háteigskirkju. Verða þá afgreidd mál sem ekki náðist að ljúka á kirkjuþingi í nóvember á síðasta ári. Einnig verða tekin fyrir nokkur ný mál. Þingið hefst klukkan 10 um morguninn og lýkur eftirmiðdag sunnudags.

Meðal þess sem rætt verður eru tillögur um sameiningu prestakalla og tillaga að starfsreglum um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kyndbundinni áreitni, ofbeldi og um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar.

Dagskrá þingsins má nálgast í heild sinni á síðunni kirkjan.is að kvöldi 1. mars.

Tillögur um sameiningu eftirfarandi prestakalla koma til umræðu:

  • Eyrabakka-, Hveragerðis-, Selfoss- og Þorlákshafnarprestaköll í Suðurprófastsdæmi verði sameinuð í eitt prestakall Árborgar- og Ölfusprestakall.
  • Sameiningu Hólmavíkur- og Reykhólaprestakalla í Vestfjarðaprófastsdæmi í eitt prestakall, Breiðafjarðar- og Strandaprestakall.
  • Akureyrar- og Laugalandsprestaköll í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi sameinist í eitt prestakall, Eyjafjarðarprestakall.
  • Djúpavogs-, Heydala-, Kolfreyjustaðar-, Eskifjarðar- og Norðfjarðarprestaköll í Austurlandsprófastsdæmi sameinist í eitt prestakall, Austfjarða-prestakall.

DEILA