Nýr tómstunda- og íþróttafulltrúi Strandabyggðar

Hólmavík. Mynd:kristinn H. Gunnarsson.

Frá því er greint á vef Strandabyggðar að Aðalbjörg Signý Sigurvaldadóttir, Hólmavík  hafi verið ráðin tómstunda- og íþróttafulltrúi Strandabyggðar í 70% starfshlutfall, frá og með 1. mars 2019.  Alls sóttu þrír um stöðuna.

Aðalbjörg Signý er með B.ed. próf í leikskólakennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri (2006) og hefur starfað víða sem deildarstarfsmaður og deildarstjóri á leikskólum.  Þar má nefna leikskólann Barnabæ, Blönduósi, leikskóladeild Kólaskers, Norðurþingi og nú síðast starfaði Aðalbjörg Signý sem deildarstjóri á Lækjarbrekku, hér í Strandabyggð.

Aðalbjörg Signý hefur einnig komið að starfsemi grunnskóla og má nefna að árin 2008-2009 var hún skólastjóri samrekins leik- og grunnskóla við Kópaskersskóla og árin 2011-2014 starfaði hún sem leiðbeinandi í grunnskóla; Öxarfjarðarskóla.

DEILA